Skildu hvolp eftir í lengri tíma

Hvolpurinn var skilinn eftir einn heima í langan tíma við …
Hvolpurinn var skilinn eftir einn heima í langan tíma við óviðunandi aðstæður. AFP

Matvælastofnun hefur nýverið tekið dýr úr vörslum umráðamanna þar sem aðbúnaður stóðst ekki þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt lögum um velferð dýra, annars vegar reglugerðar um velferð hrossa og hins vegar reglugerðar um velferð gæludýra.

Í frétt á vef Matvælastofnunar segir að í öðru málinu hafi verið um að ræða tvær hryssur, önnur með folaldi og hin fylfull, sem haldnar voru í gerði án aðgangs að beit og tryggri brynningu. Kröfum um úrbætur hafði ekki verið sinnt.

Þá var hvolpur tekinn af umráðamanni, eftir að ábending barst frá lögreglu um hvolp sem skilinn hafði verið eftir einn heima í lengri tíma við óviðunandi aðstæður.

Í báðum tilfellum var um að ræða tafarlausa vörslusviptingu þar sem úrbætur þoldu ekki bið, segir í frétt Matvælastofnunar.

Samkvæmt lögum um velferð dýra er skylt að fara vel með dýr og ber umráðamaður ábyrgð á því að annast sé um dýr í samræmi við lögin og reglur sem settar eru á grundvelli þeirra.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert