Svíi hafði heppnina með sér í EuroJackpot-útdrætti kvöldsins en hann var með allar tölurnar réttar og fær fyrir það 2,8 milljarðar íslenskra króna í sinn hlut.
Auk þess hlutu þrír einstaklingar annan vinning í kvöld og fékk hver þeirra rúmar 72 milljónir íslenskra króna í sinn hlut. Þrír hlutu þriðja vinning og fékk hver þeirra 38,3 milljónir íslenskra króna í sinn hlut.
Enginn hlaut vinning í Jóker-útdrætti kvöldsins.