Hrókurinn og Kalak, vinafélag Íslands og Grænlands, bjóða í opið hús í Pakkhúsi Hróksins, Geirsgötu 11 við Reykjavíkurhöfn, í dag.
Tilefnið er að 15 ár eru frá því að starf Hróksliða hófst á Grænlandi, en félagið hefur skipulagt hátt í 70 ferðir og hátíðir hjá vinunum á Grænlandi frá því að Hrókurinn hélt fyrsta skákmót í sögu Grænlands árið 2003.
Hrókurinn hefur einnig tekið þátt í fjölmörgum samfélagsverkefnum á Grænlandi með kjörorð sitt að leiðarljósi: „Við erum ein fjölskylda.“
Í Pakkhúsinu verður sagt frá hátíðum á Austur-Grænlandi 2.-7. ágúst og í Kullorsuaq á Vestur-Grænlandi í september. Þá verða til sýnis ljósmyndir og listmunir frá Grænlandi og úr sögu Hróksins. Hátíðarhöldin munu standa yfir frá klukkan tvö til klukkan fjögur í dag. Öllum sem vilja er velkomið að taka þátt og verða veitingar í boði hússins.