Beraði sig við Austurvöll

Maðurinn var handtekinn og færður í fangageymslu lögreglunnar.
Maðurinn var handtekinn og færður í fangageymslu lögreglunnar. mbl.is/Hjörtur

Á fjórða tímanum í nótt var ofurölvi maður handtekinn við Austurvöll. Dyraverðir á skemmtistað í bænum höfðu hann þá í tökum, eins og segir í dagbók lögreglunnar, þ.e. héldu honum.

Maðurinn er sagður hafa verið að bera sig en var ekki viðræðuhæfur sökum ölvunar. 

Maðurinn var vistaður í fangageymslum lögreglunnar sökum ástands síns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert