Rétt eftir klukkan 22 í gærkvöldi var ofurölvi maður handtekinn í Kópavogi grunaður um að hafa ógnað fólki með hnífi í hendi.
Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er maðurinn grunaður um líkamsárás, hótanir, brot á vopnalögum og fleira. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn málsins.