Isavia kærir ákvörðun Samkeppniseftirlits

Ef endanleg niðurstaða í málinu verður sú að gjaldtaka á …
Ef endanleg niðurstaða í málinu verður sú að gjaldtaka á fjarstæðum hafi verið óheimil, mun Isavia endurgreiða þau gjöld sem innheimt hafa verið frá því innheimta hófst. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Isavia hefur ákveðið að kæra bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 17. júlí síðastliðnum til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Bráðbirgðaákvörðunin felst í því að stofnunin gerir Isavia að stöðva tímabundið gjaldtöku á ytri hópbifreiðastæðum á Keflavíkurflugvelli.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Isavia.

Í tilkynningunni kemur fram að fyrirtækið er ósammála niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og telur það óeðlilegt að Samkeppniseftirlitið stöðvi gjaldtöku fyrir einn af þjónustuþáttum á Keflavíkurflugvelli.

„Með því að ákveðinn hluti þeirra aðila sem starfa við hópferðaakstur til og frá flugvellinum greiði fyrir aðstöðu á vellinum og annar hluti greiði ekki, telur félagið að samkeppnisstaða aðila á markaðinum sé skekkt,“ kemur fram í tilkynningunni.

Í samræmi við bráðabirgðaákvörðunina hefur innheimta gjalda verið stöðvuð meðan bráðabirgðaákvörðunin er í gildi en verði ákvörðuninni hnekkt í kærumeðferð eða fyrir dómstólum mun gjaldið verða innheimt fyrir tímabilið sem stöðvunin nær til.

Ef endanleg niðurstaða í málinu verður sú að gjaldtaka á fjarstæðum hafi verið óheimil, mun Isavia endurgreiða þau gjöld sem innheimt hafa verið frá því innheimta hófst.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert