Slys við Hólmsá – Suðurlandsvegur lokaður

Miklar tafir eru á umferð vegna slyss á Suðurlandsvegi.
Miklar tafir eru á umferð vegna slyss á Suðurlandsvegi. mbl.is/Árni Sæberg

Vegna umferðarslyss er Suðurlandsvegur lokaður í báðar áttir skammt austan við vegamót Suðurlandsvegar og Hafravatnsvegar.  Um er að ræða árekstur flutningabíls og jepplings en ekki liggja fyrir nánari upplýsingar að svo stöddu. 

Að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var einn fluttur á slysadeild en tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang auk dælubíls. Unnið er að því að hreinsa upp olíu af veginum. 

Búast má við töfum á umferð þarna meðan á rannsókn og annarri vinnu stendur en reynt er að liðka um með því að hleypa á hjáleið en ekki er víst að hún beri alla umferð, segir í tilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert