Ríkissáttasemjari skipar gerðardóm í ljósmæðradeilu

Djúpstæður ágreiningur hefur verið uppi á milli samningsaðila um skeið …
Djúpstæður ágreiningur hefur verið uppi á milli samningsaðila um skeið um það hvort og þá að hvaða leyti launasetning stéttarinnar sé í samræmi við menntun, álag og inntak starfsins. mbl.is/Valli

Ríkissáttasemjari hefur skipað gerðardóm í deilu Ljósmæðrafélags Íslands og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs.

Dóminn skipa þau Magnús Pétursson, fyrrverandi ríkissáttasemjari sem jafnframt er formaður, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, og Bára Hildur Jóhannesdóttir, deildarstjóri mönnunar- og starfsumhverfisdeildar Landspítala og ljósmóðir.

Gerðardómurinn er skipaður á grundvelli miðlunartillögu sáttasemjara sem samþykkt var af samningsaðilum. Djúpstæður ágreiningur hefur verið uppi á milli samningsaðila um skeið um það hvort og þá að hvaða leyti launasetning stéttarinnar sé í samræmi við menntun, álag og inntak starfsins og er gerðardómnum ætlað að kveða upp úr með það. Gerðardómurinn skal hafa lokið störfum fyrir 1. sept. 2018, að því er segir í tilkynningu.

Gerðardómurinn er sjálfstæður í störfum sínum og ákvörðunum. Hann setur sér starfsreglur, aflar nauðsynlegra gagna og getur krafist skýrslna, munnlegra og skriflegra, af þeim sem hann telur nauðsynlegt. Aðilar skulu eiga rétt á því að gera gerðardómi grein fyrir sjónarmiðum sínum. Ríkissáttasemjari útvegar gerðardómi starfsaðstöðu í húsakynnum ríkissáttasemjara, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, segir enn fremur.

„Gerðardómur skal við ákvarðanir sínar hafa hliðsjón af kjörum og launaþróun þeirra sem sambærilegir geta talist í menntun, störfum, vinnutíma og ábyrgð og, eftir atvikum, almennri þróun kjaramála hér á landi. Við mat sitt skal hann taka tillit til þeirra launahækkana sem hópurinn myndi fá eftir samþykkt miðlunartillögunnar og eftir atvikum aðgerða sem heilbrigðisstofnanir kunna að grípa til í kjölfar hans. Skal gerðardómur ljúka störfum eigi síðar en 1. september 2018.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert