Andlát: Kristján Árnason

Kristján Árnason
Kristján Árnason

Kristján Árnason, fyrrverandi þýðandi og dósent í bókmenntafræði við Háskóla Íslands, lést fyrir helgi, 83 ára að aldri.

Kristján var fæddur í Reykjavík þann 26. september 1934. Foreldrar hans voru Árni Kristjánsson, píanóleikari og tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins, og Anna Guðrún Steingrímsdóttir, húsmóðir.

Kristján stundaði nám við MR og útskrifaðist þaðan með stúdentspróf 1953. Þá útskrifaðist hann með BA-próf í grísku og latínu frá HÍ 1962 og lagði stund á nám í heimspeki, bókmenntum og fornmálum við háskóla í Þýskalandi og Sviss á árunum 1953-1958 og 1963-1965.

Hann starfaði m.a. sem kennari við Menntaskólann á Akureyri og Kennaraskóla Íslands á sjöunda áratugnum og hjá Menntaskólanum á Laugarvatni á árabilinu 1967-1990.

Eftir Kristján liggja fjölmörg skáldverk og þýðingar en hann var sérstaklega gefinn fyrir gríska menningu og listir og var t.a.m. formaður Grikklandsvinafélagsins Hellas og var sæmdur stórriddarakrossi hinnar grísku Fönix-orðu, fyrir framlag sitt til eflingar grískum menntum á Íslandi.

Hann gaf út ljóðabækurnar Rústir 1962 og Einn dag enn 1990 sem var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Hann var þó einnig þekktur fyrir þýðingaverk sín en hann þýddi leikrit, ljóð, skáldsögur og fræðirit m.a. eftir höfundana Aristóteles, Aristófanes, Catullus, François Mauriac, Goethe og Thomas Mann og hlaut árið 2010 íslensku þýðingaverðlaunin fyrir þýðingu sína á Ummyndunum eftir Óvíd.

Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands gaf út helstu ritgerðir hans um bókmenntir, þýðingarlist og heimspeki í ritinu Hið fagra er satt á sjötugsafmæli hans.

Sambýliskona Kristjáns var Inga Huld Hákonardóttir blaðamaður og rithöfundur, sem lést 2003.

Hann var áður kvæntur Kristínu Önnu Þórarinsdóttur leikkonu, sem lést 1986, og eignuðust þau þrjú börn, Önnu Guðrúnu, fædda 1962 og látna 1963, Árna, fæddan 1965 og Þórarin, fæddan 1967.

Þá lætur hann einnig eftir sig tvö stjúpbörn, Eyjólf Kjalar Emilsson, fæddan 1953, og Öldu Arnardóttur, fædda 1960.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert