Annie Mist Þórisdóttir er enn efst af íslensku keppendunum á heimsleikunum í crossfit þegar átta greinar eru búnar. Annie varð 19. í fyrstu keppni dagsins og heldur þriðja sætinu. Katrín Tanja Davíðsdóttir varð 13. í fyrstu grein dagsins og er því í fimmta sæti og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er í sjötta eftir að hafa náð ellefta sætinu í morgun.
Björgvin Karl Guðmundsson hélt sínu fimmta sæti eftir fyrstu æfingu dagsins þar sem hann varð tíundi og Oddrún Eik Gylfadóttir er í 29. sæti. Næsta grein hefst klukkan 17:15 og má fylgjast með beinni útsendingu frá leikunum hér að neðan.