Leituðu skjóls vegna vinds og vætu

Vindur og væta settu svip sinn á lokadag þjóðhátíðar en …
Vindur og væta settu svip sinn á lokadag þjóðhátíðar en allt gekk samkvæmt áætlun og nutu gestir blysanna í brekkunni á miðnætti. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Hátíðahöld í Vestmannaeyjum fóru rólega af stað í gærkvöldi og voru færri í brekkunni en gert var ráð fyrir. Gefin var út gul viðvörun í gær og vindasamt var í Eyjum og rigndi um tíma í gærkvöldi.

Lög­regla og þjóðhátíðar­nefnd voru með viðbragðsáætl­un vegna þessa og var íþrótta­húsið í Eyj­um opnað vegna veðurs. Að sögn lögreglufulltrúa leituðu nokkrir skjóls í íþróttahúsinu á meðan versta veðrið gekk yfir en ekki er vitað til þess að þjóðhátíðargestir hafi haft næturstað í íþróttahúsinu. Engar tilkynningar bárust lögreglu vegna veðurs. 

Nóttin fór að mestu leyti vel fram að sögn lögreglu. Einn gisti fangageymslu og þrjú fíkniefnamál komu á borð lögreglu. Herjólfur hóf að sigla klukkan tvö í nótt og er lögregla með vakt um borð og við höfnina. Löng biðröð er við ferjuna, á meðan flestir eiga miða eru sumir sem vonast eftir því að komast um borð sem fyrst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert