Áfangasigur í baráttunni við HIV

Embætti landlæknis.
Embætti landlæknis. mbl.is/Jón Pétur

Lyfjagreiðslunefnd samþykkti á fundi sínum 25. júní greiðsluþátttöku fyrir samheitalyfinu Emtricitabine/Tenofovir disoproxil Krka til nota í fyrirbyggjandi meðferð gegn HIV.

Skilyrði fyrir leyfisveitingunni voru að einungis læknar LSH með sérfræðiviðurkenningu í smitsjúkdómum myndu ávísa lyfinu og að meðferðin yrði veitt samkvæmt klínískum leiðbeiningum smitsjúkdómadeildar LSH, að því er segir á vef embættis landlæknis.

Fram kemur, að í þessum leiðbeiningum sé kveðið á um rannsóknir gegn HIV og öðrum kynsjúkdómum hjá þeim sem fái ávísað lyfinu auk fræðslu um varnir gegn kynsjúkdómum almennt. Einnig þurfi þeir einstaklingar sem fá lyfið að undirgangast ákveðið eftirlit í nokkra  mánuði. Leyfisskylda lyfjagreiðslunefndar sé til eins árs og verður endurmetin m.t.t. kostnaðar og fjölda einstaklinga sem fá meðferð með lyfinu.

„Sóttvarnalæknir telur að þessi ákvörðun lyfjagreiðslunefndar sé áfangasigur í baráttunni við HIV og aðra kynsjúkdóma en sóttvarnalæknir og starfshópur heilbrigðisráðherra um aðgerðir gegn kynsjúkdómum hafa áður bent á mikilvægi þessa fyrirkomulags,“ segir á vef landlæknis. 

Nánar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert