Lögregla lýsir eftir Birni Daníel

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú formlega lýst eftir fanganum sem skilaði sér ekki á áfangaheimilið Vernd á laugardagskvöld, þar sem hann var að ljúka refsiafplánun. Maðurinn heitir Björn Daníel Sigurðsson. Hann er 26 ára, 180 sm á hæð og um 80 kg. Hann var klæddur í íþróttafatnað og hvíta skó.

Lögregla biður þá, sem vita hvar Björn Daníel heldur sig, eða geta veitt upplýsingar um ferðir hans, vinsamlegast um að hringja strax í lögregluna í síma 112.

Björn Daníel afplánar fjögurra ára fang­els­is­dóm sem hann hlaut í fe­brú­ar á síðasta ári fyr­ir gróft heim­il­isof­beldi.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert