Grunsamlegir menn með höfuðljós

Um hálffjögurleytið í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um hugsanlegt innbrot í bíl við Flókagötu í Reykjavík. Þar sást til tveggja manna með höfuðljós að bogra við bifreiðina.

Lögreglumenn voru sendir á vettvang en í ljós kom að mennirnir tveir voru blaðburðarmenn. 

Í dagbók lögreglunnar er einnig greint frá því að rúmlega fjögur í nótt hafi verið tilkynnt um innbrot í verslun í Austurbænum. Lögreglan hefur ekki upplýsingar á þessari stundu um hvað var tekið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert