Harður árekstur fyrir norðan

mbl.is/Hjörtur

Tvennt var flutt á sjúkrahús eftir allharðan árekstur tveggja bíla á gatnamótum Ólafsfjarðarvegar og hringvegarins um sexleytið í kvöld.

Báðir bílarnir eru óökufærir, að sögn lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Fjórir voru í bílnum og meiddist enginn alvarlega.

Að sögn lögreglunnar er mikil umferð fyrir norðan og fólk farið að flykkjast til Dalvíkur en þar verður Fiskidagurinn mikli haldinn hátíðlegur um helgina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert