Vann rúmar 50 milljónir

Lottó.
Lottó.

Einn heppinn spilari var með allar tölurnar réttar í lottói kvöldsins og fær hann í sinn hlut 51,7 milljónir króna. 

Miðinn var keyptur í Hagkaup á Akureyri, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá, en potturinn var fimmfaldur. 

Tveir hlutu bónusvinninginn og voru miðarnir keyptir í Vitanum á Laugavegi og á lotto.is.

Einn var með fimm jókertölur réttar í réttri röð og fær sá heppni í vasann tvær milljónir króna.

Þrír voru með fjórar jókertölur réttar í réttri röð. Hver þeirra fær 100 þúsund krónur.

Lottótölurnar: 11-26-29-33-36

Bónustalan: 7

Jókertölurnar: 0-4-1-6-0

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert