Ökumaður tekinn á Ólafsfjarðarvegi

mbl.is/​Hari

Einn ökumaður var handtekinn á Ólafsfjarðarvegi um þrjúleytið grunaður um fíkniefna- og ölvunarakstur.

Að sögn lögreglunnar á Norðurlandi eystra var maðurinn á leiðinni frá Dalvík eftir að hafa verið á Fiskideginum mikla.

Umferðin hefur verið mikil í dag, að sögn lögreglunnar, en allt hefur gengið vel fyrir sig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert