Flutt alblóðug á slysadeild

Hlúð að lögreglukonunni sem særðist á vettvangi.
Hlúð að lögreglukonunni sem særðist á vettvangi. Ljósmynd/Aðsend

Flytja þurfti lögreglukonu með sjúkrabíl á Landspítalann eftir að maður veittist að lögreglu á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar nú rétt fyrir hádegi. 

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gekk maðurinn á milli bíla á götunni í annarlegu ástandi. Þegar lögregla reyndi að stoppa hann veittist hann að henni með þeim afleiðingum að a.m.k. ein lögreglukona slasaðist. Var hún flutt alblóðug á slysadeild, en ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðslin eru.

Fjöldi vitna var að atvikinu og reyndi eitt þeirra að koma lögreglu til aðstoðar vegna meiðslanna.

Maðurinn var handsamaður og er vistaður í fangageymslum lögreglunnar.

Lögreglumenn náðu að snúa manninn niður og var hann síðan …
Lögreglumenn náðu að snúa manninn niður og var hann síðan handtekinn. Ljósmynd/Aðsend

Uppfært kl. 13:16

Eftirfarandi tilkynning hefur borist frá lögreglunni í tengslum við málið:

„Nú skömmu fyrir hádegi var tilkynnt um mann í annarlegu ástandi á Grensásvegi. Er lögregla kom á vettvang brást maðurinn ókvæða við afskiptum lögreglu og veittist að þeim. Í  átökunum féllu lögreglumennirnir og maðurinn í götuna með þeim afleiðingum að annar lögreglumannanna skall harkalega með höfuðið í götunni og vankaðist við það. Hann var í framhaldi fluttur með sjúkrabifreið á Slysadeild til aðhlynningar og er þar ennþá til skoðunar.

Maðurinn var handtekinn og færður í fangageymslur lögreglunnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert