Menningarnótt haldin í 23. skipti

Það verður mikið um dýrðir á Menningarnótt í Reykjavík á …
Það verður mikið um dýrðir á Menningarnótt í Reykjavík á laugardaginn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Menningarnótt 2018 verður haldin 18. ágúst næstkomandi, sem er afmælisdagur Reykjavíkurborgar. Mikið verður um dýrðir að venju, leikarar, dansarar og fjöllistafólk verða með uppákomur og íbúar bjóða víða upp á dagskrá í húsagörðum og -sundum. Er þetta í 23. skipti sem hátíðin er haldin

Setning Menningarnætur í ár fer fram á hinu nýja Hafnartorgi. Boðið verður upp á lifandi tónlist og gefst gestum og gangandi kostur á að kynna sér svæðið í kringum Hafnartorg og skoða sýningu af svæðinu. Þetta er einstakt tækifæri þar sem svæðinu verður lokað aftur og opnar ekki fyrr en framkvæmdum lýkur.

Lúðrasveitir munu útkljá áratugalangan ríg

Meðal atriða á Menningarnótt má nefna Toppinn sem er í umsjón listræna umbreytisins sem er nýtt embætti Menningarnætur. Listræni umbreytirinn að þessu sinni er Jóhann Kristófer Stefánsson leikari. Hann mun breyta efstu hæð bílastæðahússins við Hverfisgötu 20 í „lounge rooftop bar“. Í stað bíla verður fólk, í stað ryks verða plöntur, og í stað umferðarniðs verður dönnuð house-tónlist.

Lúðrasveitir munu útkljá áratugalangan ríg í einvígi við Tjörnina og verður barist til síðasta tóns. Þá verða Færeyingar sérlegir gestir Menningarnætur og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur, færeyska hönnun, færeyskar ljósmyndir af Færeyjum og færeyskir tónlistarmenn taka lagið.

Í miðborginni verður boðið upp á þrenna stórtónleika, Tónleika Rásar 2 á Arnarhóli, en í ár verður sviðið enn stærra en venjulega, Garðpartý Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum og Hip hop tónleika á Ingólfstorgi. Þá eru yfir hundrað tónlistarviðburðir um alla borg.

Frítt er inn á öll söfn í miðborginni sem bjóða upp á fjölbreytta dagskrá fram á kvöld. Þá verður Harpa með afar glæsilega dagskrá frá kl. 13 til 18 og flugeldasýningin verður á sínum stað á Austurbakka kl. 23.

Allar götur lokaðar fyrir umferð

Á Menningarnótt er miðborgin ein allsherjar göngugata og verður því lokuð fyrir bílaumferð frá kl. 7 að morgni til 2 eftir miðnætti og er það gert til þess að tryggja öryggi gangandi og akandi vegfarenda. Gestir Menningarnætur eru hvattir til að ganga, hjóla eða nota almenningssamgöngur til að komast á hátíðarsvæðið. Þeir sem þurfa að koma á einkabíl er bent á að nota bílastæði við Borgartún og í Laugardalnum þar sem ókeypis strætóskutlur aka fólki til og frá hátíðarsvæðinu frá kl. 7.30 til 1.00.

Eins og lög gera ráð fyrir verður sektað fyrir ólöglegar bílastöður og þeir bílar sem hindra aðgengi lögreglu, sjúkrabíla og slökkviliðs verða dregnir í burtu svo unnt sé að tryggja aðgengi þessara öryggisaðila ef óhapp ber að.

Ókeypis verður í Strætó sem keyrir samkvæmt hefðbundinni leiðartöflu fram til kl. 22.30. Þá tekur við sérstök leiðartafla sem miðar að því að koma fólki hratt og örugglega heim úr miðborginni. Hægt er að finna nánari upplýsingar um leiðarkerfi þeirra vagna Strætó sem aka í miðborgina á vef Strætó.

Sérstök bílastæði fyrir fatlaða og hreyfihamlaða eru á Skúlagötu, Túngötu og við Tækniskólann. Einnig verður hægt að taka leigubíl inn á Skólavörðuholt, Skúlagötu, Túngötu og BSÍ. Sérstök salerni fyrir fatlaða eru á nokkrum stöðum á hátíðarsvæðinu.

Nánari upplýsingar um dagskrá Menningarnætur og kort yfir götulokanir má finna á Menningarnott.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert