Ágúst Valfells forseti tækni- og verkfræðideildar HR

Dr. Ágúst Valfells hefur verið ráðinn forseti forseti tækni- og …
Dr. Ágúst Valfells hefur verið ráðinn forseti forseti tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Ljósmynd/Aðsend

Dr. Ágúst Valfells hefur verið ráðinn forseti tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík frá og með 1. ágúst. Hann tekur við stöðunni af Dr. Guðrúnu Sævarsdóttur sem hefur verið forseti deildarinnar frá árinu 2011. 

Ágúst lauk doktorsprófi í kjarnorkuverkfræði frá University of Michigan árið 2000 og prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1993.

Eftir doktorspróf vann Ágúst hjá University of Maryland og Orkustofnun. Frá árinu 2005 hefur hann unnið við kennslu og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík, en Ágúst hefur einkum fengist við rannsóknir á öreindahröðlum og orkumálum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert