Áhættumat ekki á vetur setjandi

Laxaseiðum dælt úr brunnbát í sjókví Laxa fiskeldis í Reyðarfirði
Laxaseiðum dælt úr brunnbát í sjókví Laxa fiskeldis í Reyðarfirði

Áhættumat Hafrannsóknastofnunar vegna slysasleppinga á eldislaxi sætir harðri gagnrýni í skýrslu Laxa fiskeldis ehf. um aukningu á heimildum til laxeldis í sjókvíum í Reyðarfirði. Fram kemur það álit sérfræðinga fyrirtækisins að áhættumatið sé slíkum annmörkum háð að ekki verði á því byggjandi. Matið hafi ekki verið fest í lög og vísindalegt vægi þess lítið.

Laxar fiskeldi eru með laxeldi í sjókvíum í Reyðarfirði og hafa þar heimild til framleiðslu á 6.000 tonnum á ári. Fyrirtækið hefur miðað áform sín um uppbyggingu og fjárfestingar við niðurstöður burðarþolsmats Hafrannsóknastofnunar sem sýna 20 þúsund tonna hámarkslífmassa í Reyðarfirði. Í skýrslu um áhættumat sem Hafrannsóknastofnun kynnti á síðasta ári er hins vegar lagt til að samanlögð framleiðsla í Reyðarfirði yrði að hámarki 9 þúsund tonn.

Laxar fiskeldi sækja um 10 þúsund tonna aukningu í Reyðarfirði þannig að heildarframleiðslan verði allt að 16 þúsund tonn, eða 7 þúsund tonnum yfir þröskuldi áhættumatsins, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert