Liðum í úrvalsdeild mismunað á grundvelli kyns

Margrét Björg Ástvaldsdóttir flutti erindi um rannsóknina á ráðstefnu í …
Margrét Björg Ástvaldsdóttir flutti erindi um rannsóknina á ráðstefnu í HR í gær. Rannsókn hennar leiddi meðal annars í ljós að 70% af ágóða af vinnu félags á þorrablóti runnu til karlaliðs og 30% til kvennaliðs. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég var búin að finna fyrir þessu á eigin skinni í öllum liðum sem ég hef æft með. Það er enn mikið um misrétti í knattspyrnu,“ segir Margrét Björg Ástvaldsdóttir, félagsfræðingur og knattspyrnukona, um tildrög þess að hún ákvað að gera rannsókn á því hvort og hvernig knattspyrnufélög mismuni kynjunum þegar umgjörð er annars vegar.

Margrét flutti erindi á ráðstefnunni „Gender and Sport“, eða kyn og íþróttir, sem hófst í gær. „Með umgjörð á ég við ákveðin þemu. Það eru æfingatímar, klefamál, aðgengi að sjúkraþjálfara, hvort liðið sé með liðsstjóra og fleira,“ segir hún í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Þessi fleiri þemu eru hvort leikmenn fái að leiða börn inn á völlinn, æfingafatnaður, þvottur á æfingafatnaði, fjáraflanir og það hvernig fyrirliðarnir upplifa umgjörðina.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert