Undir lögaldri á 151 km hraða

mbl.is/Arnþór Birkisson

Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært á annan tug ökumanna fyrir of hraðan akstur það sem af er viku.

Sá sem hraðast ók mældist á 151 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Ökumaðurinn sá var undir lögaldri og því var forráðamönnum hans og barnaverndarnefnd gert viðvart um atvikið.

Að auki bíður hans 230.000 króna sekt, svipting ökuleyfis í tvo mánuði og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.

Þá veittu lögreglumenn, sem voru við eftirlit á Reykjanesbraut í vikunni, bifreið athygli þar sem of margir farþegar voru í henni.

Í ljós kom að umframfarþegarnir voru tvö börn á aldrinum 6 og 11 ára og hvorugt þeirra í bílbeltum. Fullorðnu farþegarnir voru allir með öryggisbelti spennt. Ökumaðurinn var sektaður um 45 þúsund krónur og athæfið að auki tilkynnt til barnaverndarnefndar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert