Bifhjól og fólksbíll rákust saman á gatnamótum Bústaðavegar og Sogavegar nú skömmu fyrir hádegi. Hefur ökumaður bifhjólsins verið fluttur á sjúkrahús með minni háttar áverka.
Þetta segir varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is, og tekur fram að talið sé að meiðsl mannsins séu ekki alvarleg. Veginum var lokað í kjölfar árekstursins vegna olíuleka en verður opnaður innan skamms, að sögn varðstjóra.