Sigurvegarar í 10 kílómetra hlaupinu í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka eru Helga Guðný Elíasdóttir og Florian Pyszel, en aðeins munaði sjö sekúndum á fyrsta og öðru sæti í karlaflokki.
Verðlaunahafar voru eftirfarandi, samkvæmt tilkynningu frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur:
Konur
- Helga Guðný Elíasdóttir, ISL, 39:24
- Arndís Ýr Hafþórsdóttir, ISL, 39:50
- Mallory Fratta, USA, 40:32
Íslenskar konur
- Helga Guðný Elíasdóttir, ISL, 39:24
- Arndís Ýr Hafþórsdóttir, ISL, 39:50
- Borghildur Valgeirsdóttir, ISL, 42:26
Florian Pyszel frá Póllandi kom í mark á tímanum 32:50.
mbl.is/Valli
Karlar
- Florian Pyszel, POL, 32:50
- Baldvin Þór Magnússon, ISL, 32:57
- Timo Kuepper, GER, 33:05
Íslenskir karlar
- Baldvin Þór Magnússon, 32:57
- Ingvar Hjartarson, 34:50
- Vilhjálmur Þór Svansson, 35:45
Hér er hægt að fylgjast með tímum hlaupara sem eru að streyma í mark.