Skullu saman við Seljalandsfoss

Um var að ræða fólksbíl og jeppa.
Um var að ræða fólksbíl og jeppa. mbl.is/JKJ

Umferðarslys varð við afleggjarann að Seljalandsfossi þegar fólksbíll og jeppi skullu saman upp úr hádegi í dag. Að sögn Sveins K. Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi, var um minni háttar árakstur að ræða og bar enginn skaða af.

Þá segist Sveinn ekki vera viss um tildrög slyssins.

„Væntanlega hefur annar verið að beygja af þjóðveginum. Þetta var slysalaust, sem betur fer.“

Jeppinn lenti utan vegar við áreksturinn.
Jeppinn lenti utan vegar við áreksturinn. mbl.is/JKJ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert