Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Breiðholtsskóla skömmu fyrir klukkan tíu í kvöld eftir íkveikju við hurð skólans.
Að sögn varðstjóra slökkviliðsins barst þó nokkur reykur inn í hluta skólans og þurfti að reykræsta hann en skemmdir voru litlar.