Flytja hús frá Selfossi til Hellu

Húsið verður flutt frá Selfossi til Hellu.
Húsið verður flutt frá Selfossi til Hellu. mbl.is/Árni Sæberg

Hús verður flutt frá Selfossi austur að Hellu á miðnætti. Talsverðar tafir verða því á almennri umferð á Suðurlandsvegi og verður vegköflum lokað um stundarsakir á meðan flutningurinn fer fram.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.  

Reiknað er með að það taki um fjórar klukkustundir að flytja húsið frá Selfossi að Hellu, ef allt gengur að óskum.

Reynt verður að hleypa umferð fram hjá eins og kostur er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert