Samráðshópur um mikilvæg fyrirtæki skoðar gerð viðbragðsáætlana

Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu.
Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samráðshópur fjögurra ráðuneyta um kerfislæg mikilvæg fyrirtæki hefur frá síðastliðnu vori skoðað gerð viðbragðsáætlana vegna hugsanlegra áfalla í rekstri mikilvægra atvinnufyrirtækja sem gætu kallað á viðbrögð af hálfu stjórnvalda.

Meginverkefni samráðshópsins eru að skoða áhrif þeirra breytinga sem hafa orðið á íslensku atvinnulífi og gjaldeyrissköpun á síðustu árum, meðal annars í tengslum við ferðaþjónustu, samgöngur og nýsköpun sem og mögulegan viðbúnað stjórnvalda við áföllum í rekstri mikilvægra atvinnufyrirtækja.

Þetta kemur fram í skriflegu svari frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu sem leiðir vinnu hópsins.

Önnur ráðuneyti sem eiga aðild að hópnum eru forsætisráðuneyti, fjármálaráðuneyti og ferða-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.

Skoðar þýðingarmikil íslensk fyrirtæki

Samráðshópurinn byrjaði á því að skoða íslensk flugfélög og ferðaþjónustu. Afrakstur þeirrar vinnu var kynntur síðastliðinn mánudag þegar ráðherrar funduðu með hópnum vegna stöðu ís­lensku flug­fé­lag­anna.

Til skoðunar eru einnig fjarskipta- og veitufyrirtæki, skipafélög sem og önnur fyrirtæki sem eru „svo þýðingarmikil í íslensku efnahagslífi að tímabundin röskun á þjónustu þeirra hefur mikil áhrif á notendur og rekstur annarra aðila með efnahagslegu tjóni fyrir samfélagið allt.“

Fimm fastafulltrúar í hópnum

Fimm fastafulltrúar eiga sæti í samráðhópnum en auk þeirra eru gestir og aðrir fulltrúar boðaðir eftir þörfum hverju sinni. Fastafulltrúarnir eru:

Gunnar Örn Indriðason, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu,
Haraldur Steinþórsson, lögfræðingur í fjármálaráðuneytinu,
Sigurður Páll Ólafsson, sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu,
Sigrún Ólafsdóttir, sérfræðingur í forsætisráðuneytinu og 
Ólafur Teitur Guðnason, aðstoðarmaður ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Samkvæmt upplýsingum frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu er ekki greitt sérstaklega fyrir þátttöku í samráðshópnum.

Niðurstöður væntanlegar í haust

Vinna við að meta þörf fyrir og koma með tillögur að viðbúnaðaráætlunum stendur nú yfir. Reiknað er með að gera grein fyrir helstu niðurstöðum og tillögum hópsins fyrir lok septembermánaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert