Ráðist á stúlku í Garðabæ

Lögreglan biður þá sem hafa upplýsingar um málið að hafa …
Lögreglan biður þá sem hafa upplýsingar um málið að hafa samband. mbl.is/Eggert

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að árás á stúlku, sem átti sér stað í Garðabæ í gær, fimmtudaginn 23. ágúst, um klukkan 14:15.

Árásin átti sér stað á svæðinu við Arnarnesmýri, nánar tiltekið á göngustígum neðan við og meðfram Gullakri og Góðakri í Garðabæ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

„Þeir sem voru á ferli á svæðinu á milli klukkan 14 og 15 og kunna að hafa orðið vitni að árásinni, eða geta veitt upplýsingar um málið, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband  í síma 444-1000, senda póst á abending@lrh.is eða senda einkaskilaboð á Facebook-síðu lögreglunnar,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert