Aðalmeðferð í Gýgjarhólsmáli í dag

Héraðsdómur Suðurlands.
Héraðsdómur Suðurlands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fyrir Héraðsdómi Suðurlands á Selfossi fer í dag fram aðalmeðferð í máli Vals Lýðssonar, sem ákærður er fyrir að hafa orðið bróður sínum, Ragnari Lýðssyni, að bana á bænum Gýgjarhóli II í Bláskógabyggð aðfaranótt 31. mars sl.

Valur er ákærður fyrir manndráp, en samkvæmt ákæru í málinu sló hann bróður sinn ítrekað í bæði höfuð og líkama, auk þess að sparka og/eða trampa á honum, meðal annars á höfði hans. Val­ur var bú­sett­ur að Gýgjar­hóli II en bróðir hans var þar í heim­sókn og höfðu þeir setið að drykkju. Valur hefur borið fyrir sig minnisleysi í yfirheyrslum hjá lögreglu. 

Ragn­ar hlaut al­var­leg­an höggá­verka of­ar­lega vinstra meg­in á enni, sem olli sári á hör­undi, blæðingu inn­an í höfuðkúpu og snöggri breyt­ingu á meðvit­und­arstigi. Af höggá­verk­an­um hlut­ust einnig ógleði, svimi og upp­köst. Þetta leiddi til þess að Ragnar lést, af banvænni innöndun magainnihalds.

Í greinargerð verjanda Vals er þess krafist að Valur verði sýknaður af manndrápsákæru, eða sakfelldur fyrir líkamsárás, þar sem ákæruvaldinu hafi ekki tekist að sanna að Valur hafi banað bróður sínum af ásettu ráði.

Val­ur hringdi sjálf­ur á lög­reglu og til­kynnti um að bróðir hans væri liggj­andi í blóði sínu á gólf­inu. Í greina­rgerð verjandans seg­ir að ekki hafi verið hægt að sanna ásetn­ing Vals, og því bætt við að hann hafi mögu­lega rugl­ast á bróður sín­um og inn­brotsþjófi í ölæði.

Verjandi Vals seg­ir að ákæru­valdið byggi ákær­una að miklu leyti á sím­tali Vals í Neyðarlín­una, þar sem hann virðist játa. Ekki sé hægt að gera það, enda hafi Vali verið brugðið og hann í ann­ar­legu ástandi.

Aðalmeðferðin hefst kl. 9:00 í dómsal Héraðsdóms Suðurlands á Selfossi. Blaðamaður mbl.is verður á staðnum og greinir frá því sem fram fer.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert