Júlíus Vífill ákærður fyrir peningaþvætti

Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa geymt fjárhæðir, að andvirði 131 til 146 milljóna króna, á erlendum bankareikningi sínum sem voru að hluta til ávinningur refsiverðra brota og ráðstafað þeim á bankareikning hjá vörslusjóðs í Sviss.

Þetta kemur fram í ákæru embættis héraðssaksóknara á hendur Júlíusi Vífli sem mbl.is hefur undir höndum.

Júlíus er sagður hafa geymt fjármagnið, sem var í Bandaríkjadölum, evrum og sterlingspundum, á bankareikningi sínum hjá bankanum UBS á aflandseyjunni Jersey í Ermarsundi á árunum 2010 til 2014.

Þá er hann sagður hafa ráðstafað umræddum fjármunum inn á bankareikning sem tilheyrði vörslusjóðnum Silwood Foundation í bankanum Julius Bär í Sviss. Rétthafar vörslusjóðsins voru Júlíus, eiginkona hans og börn.

Um var að ræða tekjur sem honum höfðu hlotnast nokkrum árum fyrr en ekki talið fram til skatts. Því greiddi hann ekki tekjuskatt, útsvar eða vexti af fjármunum. Í ákærunni segir að fjárhæð hins ólögmæta ávinnings sem Júlíus kom sér undan að greiða og vextir af því fé hafi verið á bilinu 49 til 57 milljónir króna.

Gildissvið ákvæðis um peningaþvætti rýmkað árið 2009

Í ákærunni er rakið að peningaþvætti sé refsivert brot skv. 264. gr. almennra hegningarlaga og að með lögum sem tóku gildi árið 2009 hafi gildissvið ákvæðisins rýmkað til muna.

Þannig nái ákvæðið nú til ávinnings allra refsiverða brota auk þess sem refsihámark hafi verið hækkað í 6 ár. Þá hafi sjálfþvætti verið gert ólöglegt, þ.e. það var gert refsivert að þvætta ávinning af eigin brotum.

Því hafi það brot sem Júlíus er ákærður fyrir verið refsivert frá 30. desember 2009.

Skattalagabrot fyrnd

„Sá ávinningur sem hér er ákært fyrir þvætti á kom til vegna skattalagabrota ákærða á gjaldaárinu 2006 eða fyrir þann tíma. Hlotnuðust ákærða tekjur árið 2005, eða fyrr, en taldi þær ekki fram til skatts í samræmi við lagaskyldu þar um. Gerðist ákærði því sekur um refsivert brot gegn skattalögum,“ segir í ákærunni.

Þar segir einnig að umrædd skattalagabrot séu fyrnd en það breyti ekki þeirri staðreynd að sá hluti fjármunanna sem greiða hefði átt í tekjuskatt og útsvar auk ávinnings vegna vaxtatekna og gengishagnaðar sé andlag peningaþvættisbrots Júlíusar.

„Umrætt fé er ávinningur af skattalagabrotum ákærða sem voru refsiverð þegar þau voru framin. Var heildarávinningur vegna brotanna, sem ákærði þvættaði með þessum hætti, á bilinu 49 til 57 milljónir króna,“ segir jafnframt í ákærunni.

Júlíus viðurkenndi skattalagabrot

Í ákærunni segir að við rannsókn málsins hafi Júlíus viðurkennt að fjármagnið væri tekjur sem hann hefði ekki gefið upp til skatts og því ekki greitt af þeim útsvar eða tekjuskatt.

Þar segir þó að Júlíus neiti að gera nánari grein fyrir því hvenær teknanna var aflað og því sé ekki hægt að finna út nákvæman ávinning hans.

„Hann hefur hins vegar ekki viljað segja nákvæmlega til um það hvenær umræddra tekna var aflað og því er ekki hægt að segja með fullkominni vissu hver ávinningurinn var þar sem hlutfall tekjuskatts og útsvars af tekjuskattsstofni var breytilegt á árunum fyrir 2006.“

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert