Sjö ákærðir fyrir tölvuþjófnað

AFP

Sjö eru ákærðir í einu umfangsmesta þjófnaðarmáli síðari ára hér á landi sem varðar þjófnað á 600 öflugum bitcoin-leitarvélum úr þremur gagnaverum í lok síðasta árs og upphafi þessa árs. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag en fjölmiðlar hafa ekki fengið ákæruna afhenta.

Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness 11. september næstkomandi. Ákæra var gefin út í málinu fyrir mörgum vikum en vegna sumarleyfa var málinu ekki úthlutað til dómara fyrr en í síðustu viku og þess vegna hefur orðið bið á birtingu ákærunnar. Fjölmiðlar hafa því enn ekki fengið upplýsingar um efni hennar, en hún telst formlega birt eftir að dómari hefur gefið út fyrirköll vegna þingfestingarinnar.

Þrír eru enn í farbanni vegna málsins, þeirra á meðal Sindri Þór Stefánsson sem strauk af Sogni í vor. Ekki liggur fyrir hvort fleiri en Sindri Þór eru ákærðir fyrir sjálfan þjófnaðinn á tölvunum eða hver hlutur hinna sex er talinn vera í málinu, samkvæmt frétt Fréttablaðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert