Leita enn grunsamlegra manna eystra

Fjármunum var stolið úr heimahúsi á Eskifirði í dag, en …
Fjármunum var stolið úr heimahúsi á Eskifirði í dag, en þar og í Neskaupstað hefur verið tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir. mbl.is/RAX

Lögreglan á Austurlandi hefur enn ekki haft uppi á grunsamlegum aðilum sem virðast hafa verið á ferð bæði í Neskaupstað og á Eskifirði í dag, þrátt fyrir mikla leit. Vitað er að í einu húsi á Eskifirði náðu þeir að stela fjármunum, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.

Lögregla segist hafa fengið lýsingu á þeim aðila sem þar var að verki. Það mun hafa verið karlmaður á fertugsaldri, með dökkt og vel snyrt skegg. Hann var talinn um það bil 180 sentimetrar á hæð, með brúnan bakpoka og í léttum dökkum jakka.

Fram kom að viðkomandi hafi talað ensku en að sögn tilkynnanda taldi hann viðkomandi ekki vera frá enskumælandi landi.

Einnig hefur lögregla fengið lýsingu á öðrum aðila sem bankaði upp á hjá fólki á svæðinu og var þar um að ræða karlmann á fertugsaldri, sem sagður var meðalmaður á hæð í bláum regnjakka og með bláleitan bakpoka.

Lögreglan biður fólk að hafa í huga að í sumar hafi verið farið inn í hús víða um land og verðmætum stolið. Einkenni þessa hefur verið að aðilar fara inn í ólæst hús og hefur þetta verið að gerast yfir daginn, þegar fólk er vanalega í vinnu.

„Það sem þessir aðilar virðast gera er að þeir reyna að fara þar sem engir eru heima, banka en fara inn ef engir koma til dyra og hús eru ólæst. Þeir eru einnig tilbúnir með einhverjar skýringar þegar fólk er heima og kemur að þeim, eins og að spyrja um gistingu eða jafnvel nefna einhver nöfn erlendra aðila og þá hvort viðkomandi búi ekki hér,“ segir í tilkynningu lögreglu, sem telur að mennirnir séu enn á Austurlandi og biður fólk um að hafa það í huga.

Lögreglan vill beina þeim tilmælum til fólks ef það verður vart við grunsamlegar mannaferðir að láta lögreglu strax vita með því að hringja í 112.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert