Katrín svarar athugasemdum ASÍ

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ummæli sín í samræmi við niðurstöðu …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ummæli sín í samræmi við niðurstöðu meirihluta starfshóps um málefni kjararáðs. mbl.is/Hari

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu á vef Stjórnarráðsins, vegna yfirlýsingar Alþýðusambands Íslands í dag, þar sem fram kom að ummæli forsætisráðherra í Kastljósi í gærkvöldi hefðu verið bæði „efnislega röng og afar villandi“.

Katrín segir að ummæli sín, er hún benti á að meðaltalslaunaþróun þeirra sem heyra undir kjararáð verði sambærileg við aðra hópa frá árinu 2013 til 2018, svo fremi sem laun þeirra verði fryst út árið, séu í samræmi við niðurstöður skýrslu sem unnin var í samráði stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins og kom út í febrúar á þessu ári.

Forsætisráðherra heldur því þó til haga að fulltrúi ASÍ í nefndinni hafi skilað minnihlutamálefni um þessi mál í skýrslunni.

Í skýrslu starfshóps um málefni kjararáðs segir orðrétt um þessi mál:

„Ef ekki verður um frekari endurskoðanir að ræða á árinu 2018, þ.e. laun haldist óbreytt frá síðustu úrskurðum kjararáðs til ársloka 2018, yrði launaþróun kjararáðshópsins að meðaltali við þau mörk sem rammasamkomulagið setti og að framan hafa verið metin á bilinu 43-48%. Eins og fram kemur í skýrslunni er launaþróun innan hópsins mjög ólík. Til dæmis hafa héraðsdómarar fengið 35% hækkun en ráðherrar 64% hækkun á sama tímabili. Ef litið er til lengri tíma, t.d. starfstíma kjararáðs frá árinu 2006, blasir við önnur mynd en á því tímabili hafa laun þessara starfsgreina þróast með svipuðum hætti.“

Katrín segir í yfirlýsingunni að rétt sé að halda því til haga að fulltrúi Alþýðusambandsins skilaði minnihlutaáliti um þessi mál í skýrslunni, en í starfshópi um málefni kjararáðs sátu þrír fulltrúar ríkisins og þrír fulltrúar launafólks og atvinnurekenda, auk Jóhannesar Karls Sveinssonar lögmanns.

„Þær breytingar sem gerðar hafa verið og verða gerðar á fyrirkomulagi launa þeirra hópa sem áður heyrðu undir kjararáð byggja á niðurstöðu meirihluta nefndarinnar,“ segir Katrín í yfirlýsingu sinni.

Yfirlýsing forsætisráðherra vegna athugasemda ASÍ

Skýrsla starfshóps um kjararáð

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert