Vilja ræða við tvo vegna árásar í Garðabæ

Lögreglan vill tala við mann sem var á göngu með …
Lögreglan vill tala við mann sem var á göngu með ljósan hund og konu sem var að skokka í bleikri peysu. mbl.is/Eggert

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar enn árás á stúlku í Garðabæ, fimmtudaginn 23. ágúst sl. Nokkrar ábendingar hafa þegar borist vegna málsins, samkvæmt tilkynningu lögreglu, sem óskar nú eftir því að ná tali af tveimur aðilum.

Lögreglan vill ná tali af manni sem var á gangi með ljósan hund og konu sem var að skokka í bleikri peysu á göngustígnum neðan við og meðfram Gullakri og Góðakri í Garðabæ milli klukkan 14.10 og 14.30 síðastliðinn fimmtudag.

Þessir einstaklingar og aðrir sem telja sig geta veitt upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband í síma 444-1000, senda póst á abending@lrh.is eða senda einkaskilaboð á Facebook-síðu lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert