Opna eitt stærsta veitingahús Íslands

Skelfiskmarkaðurinn verður opnaður í hádeginu á morgun.
Skelfiskmarkaðurinn verður opnaður í hádeginu á morgun. mbl.is/Valgarður Gíslason

Skelfiskmarkaðurinn, nýtt veitingahús á Klapparstíg í Reykjavík, verður opnað í hádeginu á morgun. Þar verður rúm fyrir allt að 310 gesti.

Hrefna Sætran kokkur segir að þar verði m.a. boðið upp á ostrur sem eigendurnir rækta ásamt öðrum á Húsavík.

Fyrir eru sömu aðilar með veitingahúsin Fiskmarkaðinn og Grillmarkaðinn auk ölstofu. Alls munu veitingahúsin þrjú rúma 545 gesti, að því er fram kemur í umfjöllun um það í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert