Opnað í sjóböð í fögru umhverfi

Sólsetur við Skjálfanda. Sjóböðin eru úti á Húsavíkurhöfða, rétt við …
Sólsetur við Skjálfanda. Sjóböðin eru úti á Húsavíkurhöfða, rétt við vitann, og gestirnir hafa útsýni út á flóann og til Kinnarfjalla Ljósmynd/Gaukur Hjartarson

„Við finnum fyrir miklum áhuga enda erum við að bjóða upp á einstaka upplifun,“ segir Sigurjón Steinsson, framkvæmdastjóri Sjóbaðanna á Húsavíkurhöfða, GeoSea.

Böðin opna dyr sínar fyrir gestum klukkan 10 á föstudag og þá geta fyrstu gestirnir notið þeirra.

Sigurjón segir að framkvæmdir séu á lokastigi. Baðhúsið sjálft sé að mestu tilbúið og böðin sem eru utanhúss alveg tilbúin. Enn sé verið að vinna við að ganga frá umhverfinu og verði sú vinna áfram í gangi. Böðin eru við vitann á Húsavíkurhöfða, nálægt bjargbrúninni, og er útsýnið út á Skjálfandaflóa og til Kinnarfjalla tilkomumikið, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert