Leita tveggja til viðbótar vegna árásar á dyravörð

Þrír eru í gæsluvarðhaldi vegna árásar á dyravörð í miðbæ …
Þrír eru í gæsluvarðhaldi vegna árásar á dyravörð í miðbæ Reyjavíkur um síðustu helgi. Lögreglan leitar nú tveggja manna til viðbóta í tengslum við rannsókn málsins. mbl.is/Arnþór Birkisson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja manna í tengslum við alvarlega líkamsárás sem dyravörður á skemmtistaðnum Shooters varð fyrir aðfaranótt sunnudags.

Fjórir menn hafa setið í gæsluvarðhaldi vegna málsins síðan á sunnudag en Rúv greinir frá því að einum hafi verið sleppt úr haldi í dag. Aðild mannsins að málinu er enn til rannsóknar.

Dyravörðurinn liggur al­var­lega slasaður á spít­ala en hann hlaut mænuskaða í árásinni. Mennirnir þrír sem enn eru í gæsluvarðhaldi hafa allir verið yfirheyrðir og líkt og fyrr segir leitar lögreglan nú tveggja til viðbóta vegna rannsóknar málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert