Þrír eldislaxar úr veiðiám

Við laxveiðar í Langadalsá í Ísafjarðardjúpi.
Við laxveiðar í Langadalsá í Ísafjarðardjúpi. mbl.is/Golli

Staðfest hefur verið með greiningu á vegum Hafrannsóknastofnunar að þrír af fjórum löxum sem veiddust á Vestfjörðum nýlega og voru úr eldi.

Laxarnir voru úr Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi, Selá í Skjaldfannardal og Staðará í Steingrímsfirði. Fjórða sýnið sem rannsakað var reyndist vera náttúrulegur lax úr Hvannadalsá í Ísafjarðardjúpi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar kemur fram að þessi fjöldi eldislaxa í ám á þessum svæðum sé í samræmi við það sem áhættumat um erfðablöndun gerir ráð fyrir miðað við núverandi umfang sjókvíaeldis hér við land. „Hlutfall eldislaxa í þessum ám er, miðað við þennan fjölda laxa, vel undir þeim mörkum að erfðasamsetningu villtu stofnanna sé hætta búin,“ segir á heimasíðunni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert