Viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli

Lögregluaðgerðum er lokið.
Lögregluaðgerðum er lokið. mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Mikill viðbúnaður var í brottfararsal Keflavíkurflugvallar fyrir skemmstu, en þar var fjölmennt lið sérsveitar lögreglu og búið að girða af svæði að sögn fréttaritara mbl.is sem er á staðnum.

Lögreglan á Suðurnesjum gat ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Uppfært kl. 11:25: Lögregluaðgerðum er lokið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum var um að ræða pakka sem skilinn hafði verið eftir. Grunur vaknaði um að eitthvað óeðlilegt væri þar á ferð og var venjubundið ferli sett af stað vegna þessa. 

Í ljós kom að pakkinn hafði verið skilinn eftir af farþega í ógáti og reyndist engin hætta á ferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert