Ók ölvaður á 151 km/klst hraða

Erlendur ferðamaður sem grunaður er um ölvunarakstur var stöðvaður á 151 km/klst hraða á Reykjanesbrautinni í nótt, en þar er hámarkshraði 90 km/klst. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð í sýna- og skýrslutöku, en var að þeim loknum frjáls ferða sinna.

Lögreglan á Suðurnesjum hafði einnig afskipti af öðrum ökumönnum og var þannig einn sviptur ökuréttindum til bráðabirgða eftir að lögreglan hafði mælt bifreið hans á ríflega tvöföldum hámarkshraða eða á 71 km hraða þar sem hámarkshraði er 30 km á klukkustund.

Fáeinir ökumenn til viðbótar voru kærðir fyrir hraðakstur um helgina. Einn til viðbótar ók án þess að hafa öðlast ökuréttindi.

Þá voru nokkrir ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur og skráningarnúmer fjarlægð af bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar í umferðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert