Sigurður áfram í farbanni

Sigurður Kristinsson.
Sigurður Kristinsson. mbl.is/Hari

Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því fyrir helgi þess efnis að Sigurður Kristinsson skuli sæta farbanni til fimmtudagsins 4. október.

Sig­urður hef­ur verið í far­banni frá 20. apríl. Hann er grunaður um að vera viðriðinn inn­flutn­ing á fimm kíló­um af am­feta­míni til lands­ins. Mál Sigurðar barst héraðssaksóknara til ákærumeðferðar 5. september.

Fram kemur í úrskurði héraðsdóms að samkvæmt mati héraðssaksóknara sé fyrir hendi rökstuddur grunur um að kærði hafi framið brot sem varðað geti tólf ára fangelsi.

Því sé nauðsynlegt að tryggja nærveru hans á meðan sakamálið á hendur honum sé tekið til meðferðar fyrir dómstólum.

Sigurður var upphaflega handtekinn við komuna til landsins frá Spáni í lok janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert