Borgarbrautin malbikuð í dag

Stefnt er að því að malbika í dag báðar akreinar …
Stefnt er að því að malbika í dag báðar akreinar Borgarbrautar í Borgarnesi. mbl.is/Golli

Stefnt er að því að malbika í dag báðar akreinar Borgarbrautar í Borgarnesi frá gatnamótum hringvegar og Borgarbrautar í átt að höfninni, að því  er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.

Verður annarri akreininni lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir til tíu í kvöld.

Eru vegfarendur beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert