Fyrstu ársskýrslur ráðherra birtar

Stjórnarráð Íslands.
Stjórnarráð Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ársskýrslur ráðherra hafa verið birtar í fyrsta skipti samkvæmt 62. gr. laga um opinber fjármál.

Í lögunum er kveðið á um að hver ráðherra skuli birta slíka skýrslu þar sem gera skal grein fyrir útgjöldum málefnasviða og málaflokka og bera saman við fjárheimildir fjárlaga, að því er kemur fram í tilkynningu.

Þá skal í ársskýrslunum gera grein fyrir fjárveitingum til einstakra ríkisaðila og verkefna og leggja mat á ávinning af þeim með tilliti til aðgerða og markmiða sem sett hafa verið fram í fjármálaáætlun.

Ársskýrslunum er ætlað að stuðla að auknu gagnsæi um ráðstöfun og nýtingu fjármuna og vera um leið traustur grundvöllur fyrir umræðu um stefnumörkun og forgangsröðun hins opinbera.

Markmiðið með ársskýrslunum er að fyrir liggi heildstæð og greinargóð samantekt um þróun útgjalda og mat á árangri í samanburði við sett markmið í því skyni að skýra samhengi fjármuna og stefnumótunar. Þannig verði tryggð góð yfirsýn og eftirfylgni með framgangi settra markmiða í fjármálaáætlun á einstökum málefnasviðum sem ráðherrar bera ábyrgð á.

Ársskýrslurnar eru birtar með fyrirvara um fjárhæðir þar sem endanlegur ríkisreikningur ársins lá ekki fyrir við gerð þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert