Útboði vegna sjúkrabílakaupa frestað

Ágreiningur hefur verið á milli RKÍ og velferðarráðuneytisins um eignarhald …
Ágreiningur hefur verið á milli RKÍ og velferðarráðuneytisins um eignarhald á sjúkrabílunum. mbl.is/Eggert

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og Ríkiskaupa um að fresta útboði vegna kaupa á sjúkrabílum um fjóra mánuði. Unnt ætti að vera að taka nýja sjúkrabíla í notkun fyrir lok næsta árs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

Rauði krossinn á Íslandi (RKÍ) hefur annast útvegun og rekstur sjúkrabíla og búnaðar fyrir íslenska heilbrigðiskerfið frá 1998, en síðasti samningur rann út í árslok 2015. Síðan þá hefur verið unnið á grundvelli samningsins og viðræður farið fram á milli RKÍ og SÍ.

Ágreiningur hefur verið á milli RKÍ og velferðarráðuneytisins um eignarhald á sjúkrabílunum, en ríkið hefur staðið straum af kaupum nýrra sjúkrabíla að stærstum hluta en eignarhaldið hefur verið Rauða krossins. Í mars sagði RKÍ sig frá rekstri sjúkrabíla og í framhaldinu var kallaður saman ráðgjafahópur sérfræðinga á sviðið sjúkraflutninga, og meðal þess sem hópurinn lagði til var að farið yrði í útboð á allt að 25 sjúkrabílum í stamstarfi við Ríkiskaup.

SÍ var falið að undirbúa útboð og var það auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu í júlí á þessu ári. Samkvæmt útboðinu var miðað við að Sjúkrabílasjóður, sem er að mestu fjármagnaður með framlögum frá ríkinu og tekjum af sjúkraflutningum, stæði straum af kaupum á bílunum.

Velferðarráðuneytið hefur talið óumdeilanlegt að framlög ríkisins í Sjúkrabílasjóðinn og tekjur vegna flutninga skuli renna til kaupa og reksturs sjúkrabíla. Viðræður við RKÍ standa enn yfir um breytt fyrirkomulag, en þar sem niðurstaða hefur ekki náðst hefur ákvörðun um frestun útboðs verið tekin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert