Bæjarins bestu á sinn stað

Pylsuvagn Bæjarins bestu er nú kominn á sinn stað. Vagninn var færður um set í fyrrasumar vegna framkvæmda. Tilfærslan truflaði söluna lítið en vagninn var opnaður klukkustund síðar en vanalega eða klukkan 11. Líkt og aðra daga var löng röð fyrir utan vagninn í hádeginu.

Um áttatíu ár eru liðin frá því að pylsuvagn undir merkjum Bæjarins bestu var opnaður fyrst en vagninn hefur aldrei verið vinsælli og annar vart eftirspurn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert