Hættuleg klifurbelti innkölluð

Apollo-klifurbelti.
Apollo-klifurbelti.

GG Sport hefur innkallað Apollo-klifurbelti frá Grivel vegna slysahættu, en beltin geta rifnað.

Fram kemur á vef Neytendastofu, að stofnunin hafi tekið þátt í átaksverkefni í samstarfi við önnur Evrópuríki um að skoða klifurbúnað. Neytendastofa sendi meðal annars Apollo-klifurbeltin til prófunar.

„Niðurstöður prófunarinnar leiddu í ljós að hætta var á að beltin gætu rifnað. Þegar niðurstöður voru ljósar ákvað GG Sport að innkalla vöruna strax.

Samkvæmt tilkynningu frá GG Sport verða klifurbeltin endurgreidd og eru viðskiptavinir sem eiga beltin beðnir um að hafa samband við verslunina,“ að því er segir á vef Neytendastofu.

Neytendastofa hvetur þá sem eiga Apollo-klifurbelti frá Grival að hætta strax notkun þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert