Ný framkvæmdastjórn SÍF

Stjórnin kát.
Stjórnin kát. Ljósmynd/Aðsend

Ný framkvæmdastjórn Sambands íslenskra framhaldsskólanema var kosin á aðalþingi sem fram fór í Háskólanum í Reykjavík um síðustu helgi. 70 fulltrúar nemenda úr framhaldsskólum af öllu landinu sóttu þingið.

Auk hefðbundinna aðalfundastarfa voru flutt erindi tengd stefnu félagsins til fjögurra ára, sem samþykkt var á þinginu fyrir ári. 

Fram kemur í tilkynningu frá nýrri stjórn að mikið hafi verið rætt um sálfræðiþjónustu innan framhaldsskólanna. SÍF mun áfram beita sér fyrir því að öllum nemendum standi til boða gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta innan veggja framhaldsskólanna hið fyrsta.  

Ný stórn SÍF:

Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, Tækniskólanum - formaður
Ólafur Hrafn Halldórsson, Tækniskólanum - varaformaður
Hekla Hjaltadóttir, Menntaskólanum við Hamrahlíð - gjaldkeri
Daníel Þór Nýtt Samúelsson, Framhaldsskólanum á Laugum - jafnréttis- og forvarnafulltrúi
Elín Halla Kjartansdóttir, Menntaskólanum í Reykjavík - margmiðlunarstjóri
Isabelle Kristín Tarbox, Menntaskólanum við Hamrahlíð - alþjóðafulltrúi 
Snæþór Bjarki Jónsson, Menntaskóla Borgarfjarðar - verkefnastjóri

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert