Áhættan farin að minnka

Brjóstaskurðaðgerð.
Brjóstaskurðaðgerð. mbl.is/Ómar Óskarsson

Hættan á að hver einstaklingur á Íslandi greinist með krabbamein er hætt að aukast og virðist raunar farin að minnka, að sögn Laufeyjar Tryggvadóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsskrár. Þetta er m.a. þakkað minnkandi reykingum, hollara mataræði og skimun fyrir forstigum leghálskrabbameins.

Árlega greinast hér um 1.600 einstaklingar með krabbamein og hefur verið stöðug fjölgun frá upphafi krabbameinsskráningar árið 1954.

„Horfur krabbameinssjúklinga hafa batnað mjög mikið með tímanum. Nú eru á lífi yfir 15.000 manns sem hafa greinst með krabbamein, þar af stór hópur sem er læknaður,“ sagði Laufey. Því er spáð að árið 2030 verði fjöldi krabbameinstilfella sem greinast árlega kominn yfir 2.000. Helsta skýringin er sú að Íslendingum fjölgar og að þjóðin er að eldast. Nýgengi krabbameina eykst með aldrinum, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Dánartíðni af völdum krabbameina fer lækkandi hér eins og víðast hvar í Evrópu. Þar vega líklega þyngst stórstígar framfarir í meðferð sjúklinga, minni reykingar og skimun fyrir brjóst- og leghálskrabbameini.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert